Planar 44D-12-GP Dísel olíumiðstöðin kemur í pakka með þeim öllum þeim helstu hlutum og áhöldum sem nauðsynleg eru fyrir uppsetningu. Olíufíringin hitar upp stýrishús og svefnrými í öllum helstu stærðum af vörubílum, rútum, sendibílum, bátum o.fl.
Helstu kostir þessarar olíumiðstöðvar
Hagstætt verð
Lítil eldsneytisnotkun
Lítil orkunotkun - Mögulegt að nota olíumiðstöðina lengi þrátt fyrir vélarstopp
Hægt að handstilla afköst eða sjálfstýring með hitastilli
Lítið hljóð og aukin líftími vegna kolalauss mótors
Innbyggt villuleitarforrit